Hver var Jónas?
Í
tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jónasar Hallgrímssonar þann 16. nóvember 2007 gerði Lífsmynd
heimildarmynd um „ástmögur Íslands”– skáldið, náttúrufræð-inginn og Fjölnismanninn Jónas Hallgrímsson. Það er gott fyrir okkur Íslendinga að vera minnt á eigin sögu, ekki síst á tímabilið er baráttan fyrir sjálfstæði var í algleymingi. Margir telja að Jónas hafi öðrum fremur haft áhrif á þá baráttu með því að blása Íslendingum ættjarðarást í brjóst.
Í myndinni er leitast við, á lifandi og léttan hátt að varpa ljósi á hinar mörgu hliðar Jónasar og því sem hann áorkaði á sinni skömmu ævi – ekki síst er leitast við að varpa ljósi á þann mann sem Jónas hafði að geyma. Myndin byggir á frásögnum ýmissa manna sem og fræðimanna, ásamt leiknum viðtölum við „samtíðarmenn og vini” Jónasar Hallgrímssonar.
Við það fléttast leikin atriði úr lífi hans hér heima og í Kaupmannahöfn, og sviðsettar skemmtilegar sögur
tengdar Jónasi.
Myndin er til sölu í Cinema No 2 á sýningartíma.
Sýningartími: 70 mínútur
Tungumál: Íslenska
Textar: Íslenskur
Framleiðsluár: 2007
Form: DVD All Region / PAL